Unglingadeild
Barnastarf
Bókabúð Vegarins
Heimahópar
Karlastarf
Krakkastarf
Lofgjörðarhópur
Unglingadeild
  Frá Unglingaleiðtoga
  Unglingaleiðtogar


VEGABRÉFIÐ
PÓSTLISTI
SENDA PÓST
SPJALLRÁSIN

 

Unglingastarf Vegarins er vettvangur fyrir ungt fólk til að hittast og eiga samfélag við hvort annað og Guð!  Unglingasamkomur Vegarins eru á föstudagskvöldum kl. 20:00.  Bænastundir fyrir samkomur eru klukkan 19:00.

 

Allir eru velkomnir!

Við leggjum töluverða áherslu á hópastarf sem er eftirfarandi:

 

Lofgjörðarhópur

Lofgjörðarhópurinn er svo að segja hljómsveitin sem sér um lofgjörðina/tónlistina á samkomum.  Æfingar unglingalofgjörðarinnar eru á fimmtudögum kl. 18:00.  Lofgjörðarleiðtogi unglinganna er Bernhard Wiencke.

 

Magmiðlun

Margmiðlunarhópurinn sér um gerð stuttmynda, hönnun veggspjalda (plaggata) og að halda utan um heimasíðu unglingastarfsins. Mm-hópurinn sér um að taka upp ræður á föstudagskvöldum og setja þær inn á heimsíðu hópsins þannig að enginn þurfi að missa af því sem fer fram auk þess sem allar auglýsingar á vegum unglingastarfsins fara í gegnum Mm.  Mm-hópurinn hittist ekki á neinum sérstökum tímum heldur hringjast menn á og velja sér stað og stund til að magmiðlast!   Fleiri hópar eiga eftir að líta dagsins ljós en á þessum tímapunkti er ekki ljóst hvernig hópar það verða!

 

Við hvetjum þig til að vera með!  

 

Frekari upplýsingar um u-starfið eru gefnar á skrifstofu kirkjunnar í síma 564 2355

 

Ef þú hefur áhuga á að fræðast meira um okkur í unglingastarfinu og hvað er framundan hafðu þá endilega samband við unglingaleiðtogann Gunnar Wiencke á netfangið gunnar.wiencke@gsus.is eða í síma 695 5240.

 

Láttu sjá þig og God bless!

 

                                                      Smiðjuvegi 5 l 200 Kópavogur l Sími 564 2355 l Fax 564 2351     Vefstjóri: Hilmar Halldórsson

Deildir innan Vegarins / Unglingadeild
Senda inn bænarefni