Fréttir


VEGABRÉFIÐ
PÓSTLISTI
SENDA PÓST
SPJALLRÁSIN
2.11.2009
Karlasamfélag

Karlastarfið í Veginum er á tveggja vikna fresti, fyrsta og þriðja miðvikudag hvers mánaðar, kl. 20 í húsnæði kirkjunnar að Smiðjuvegi 5. Karlmenn þurfa áskoranir í hinu andlega sem hinu veraldlega.   Ef þú ert karlkyns, 13 ára eða eldri, þá væri gaman að sjá þig í starfinu með okkur.  Allir eru velkomnir. 

 

Í bland við leit okkar að réttu formúlunni fyrir göngu hins kristna karlmanns þá ætlum við einu sinni í mánuði að gera eitthvað skemmtilegt saman eins og að fara í keilu, gufubað, út að borða, í fótbolta, sjóstangveiði, golf, á steikhús, í helgarferð út úr bænum, í veiðiferð, á rjúpu, á skíði river rafting eða hvað sem okkur dettur í hug.

 

 

 

Þeir sem halda utan um starfið eru Einar Valgeir, Magnús og Hafsteinn.  Bjóddu með þér vini, félaga, syni, föður eða bara hvaða karlpeningi sem er.  Allir getum við átt góðar stundir saman.

 

Aksjón-planið í vetur:

11. nóvember     Keila

27. janúar          Borgari & bíó

                                                      Smiðjuvegi 5 l 200 Kópavogur l Sími 564 2355 l Fax 564 2351     Vefstjóri: Hilmar Halldórsson

Fréttir
Senda inn bænarefni